mánudagur, 1. ágúst 2011


Mikið geta fallegir hlutir orðið fallegri ef að þeir eru í réttu litunum.


Fyrir
Eftir

Græni liturinn hlaut ekki náð í litaflórunni minni þegar ég fékk þennan kassa að gjöf. Ég tók sandpappír og pensil og reddaði málunum, útkoman varð þessi yndislegi saumakassi sem ég er mjög ánægð með! Alltaf gaman að sauma og ekki skemmir að hafa fallega hluti hjá sér í leiðinni.

Annars þá var ég að laga til í herberginu mínu og rakst á easy stitch saumavél sem ég fékk í jólagjöf fyrir mörgum mörgum árum. Svolítill munur á henni og saumavélinni sem ég er að nota núna.



Ég er búin að vera að dunda mér við það tvö síðastliðin kvöld eftir vinnu að breyta gömlu pilsi í kjól, var svo sem búin að vera að nota það sem kjól en það var alltaf vesen með það en núna á það að svínvirka sem kjóll!


Á eftir að laga smá og setja eina teygju  og  vollah....

Vona að allir hafi átt góða helgi, ég eyddi minni í leiðinda veikindi svo ekki hef ég frá neinu skemmtilegu að segja. Njótið því sem eftir ef af sumrinu, þar sem að ágúst er byrjaður fer að styttast í að skólar hefjist!

Kveðja
Ég.



1 ummæli:

  1. Æji nú langar mig til þess að finna mér eitthvert svona fallegt box undir saumaddótið mitt, er bara með einhverja lásí körfu eins og er. Og litla saumavélin er náttúrulega sjúklega krúttaraleg!! Meira blogg! meira blogg! gó sigga! ;*

    SvaraEyða