Það er vika síðan ég flutti suður og sú vika hefur farið í það að koma mér og búslóðinni fyrir, það hefur tekist eins og i draumi og allt komið á sinn stað núna.
Búið að versla allt sem þarf, húsmóðirin í mér og nískupúkinn voru reyndar agalega ósammála um það hvað væri nauðsynlegt að eyða peningunum í og hvað ekki.
Ég kem mér vonandi í það fljótlega að henda inn nokkrum myndum til að sýna sniðugar hugmyndir sem að brutust út þegar það var verið að koma öllu á sinn stað.
Uppskrift dagsins :
Kjúklingabringur (1 á mann), kryddað eftir tilfinningu,
smellt í eldfast mót, dass af kotasælu skellt ofaná hverja bringu og inní ofn þar til tilbúið.
Með þessu sýð ég gjarnan hrísgrjón eða hef ofnbakaðar kartöflur og kjúklingasósu (pakkasósa) með papriku og hvítlauk, hún er í algjöru uppáhaldi.
Ferskt og gott salat með, í kvöld var lambhagasalat, rauð paprika, tómatar, rauðlaukur og vínber.
Krydd sen ég nota gjarnan á kjúkling eru m.a. svartur pipar, kjúklingakrydd, krydd lifsins, oreganó og piri piri. Það er nú samt algjör óþarfi að setja þetta allt á í einu.
Það sem mér finnsta agalega nauðsynlegt í hverju eldhúsi er góð kryddhilla. Krydd gerir gæfumunin fyrir allan mat!
Þangað til næst
-Sigríður Árdal
pipar er ömurlegasta krydd í heimi! en ég er að digga þessa uppskrift, hún er meira að segja semi kött væn. Ég ætla allavega að skella kryddaðri kotasælu með næstu kjúllabringu í ofninn :)
SvaraEyðaneeei Alma, ég elska svartan pipar, hann fer í nánast allt í eldhúsinu hjá mér. Nema bakstur!
SvaraEyða