mánudagur, 25. júlí 2011

Prjónastund í Áshlíðinni.

Mig hefur lengi langað til að prjóna slá úr klukkuprjóni á sjálfa mig eins og þessa, ég hef alltaf átt allt til nema prjónana. Ég tók mig til í dag og keypti mér prjóna nr. 20 í bæjarferðinni.  Að prjóna á prjóna nr. 20 er frekar fyndið því þeir eru svo rosalega stórir!

Það reynir á að prjóna á svona stóra prjóna!
Annars þá er klukkuprjón mitt uppáhalds prjón, það er eitthvað svo yndislega þykkt og gott að koma við það svo er það líka ótrúlega fallegt, sérstaklega ef það er prjónað gróft. Mörgum finnst tilhugsunin um klukkuprjón agaleg, segja að það sé svo flókið. Þvert á móti er það mjög einfalt, tekur nokkrar umferðir að ná því og vollah þú spænir áfram! Það er mjög einfalt að nálgast lýsingu á klukkuprjóni, t.d. er lýsing í bókinni "lærið að prjóna" og bókinni "prjónaperlur". Annars er líka mjög lítið mál fyrir mig að skrifa niður lýsinguna fyrir áhugasama, þetta eru aðeins tvær línur!

Sláin mín, eða það sem er komið af henni. Prjónar nr. 20,
 tvöfaldur álafoss lopi, hvítur og ljósbrúnn prjónað saman.

 Ég sit í sófanum heima hjá Sindra, hann er vinstra megin við mig að ganga frá endum í húfunni sem að hann var að klára (með dyggri aðstoð þar sem að ég prjónaði 85% af henni) og hægra megin við mig situr litli bróðir hans og bisar við það að læra að prjóna. Honum finnst þetta frekar snúið, en gengur furðu vel!


Einn agalega stoltur!

Með þessu hvet ég alla til þess sem að langar að læra að prjóna að læra það! Það er ekkert sem stoppar ykkur nema þið sjálf, ef 7 ára drengur tekur sig til á mánudagskvöldi og lærir það þá geta það allir! Ég er líka rosalega til í að aðstoða ef einhver lendir í vandræðum!

Kveðja húsmóðirin!

2 ummæli:

  1. Vá frábært! Þetta verð ég að prófa :) Lýst vel á bloggið þitt-gangi þér vel húsósystir!

    SvaraEyða
  2. hahaha hversu krúttaralegt! og vá ég get alveg ímyndað mér að prjón með svona prjónum sé bara heljarinnar workout! Flottust Sigga ;)

    ps. Það verður kennt prjón uppí iðjuþjálfun í vinnunnu minni í vetur, ég ætla að mæta og læra þetta almennilega fyrir fullt og allt ;)

    SvaraEyða