| Prjónað úr léttlopa, prjónar nr. 4,5 í stroff og 5,5 í búk. |
miðvikudagur, 20. júlí 2011
Handavinna
Einsog svo margir aðrir lærði ég að prjóna í grunnskóla, af einskærri skyldu prjónaði ég lítil verkefni og svo var það búið. Fyrir forvitni skráði ég mig í textil áfanga í vali í Menntaskólanum þar var mér kennt að prjóna, hekla, þæfa og þrykkja. Í stuttu máli sagt þá fannst mér ótrúlega gaman að prjóna, þæfa og þrykkja en að hekla var algjör pynting! Aldrei hefur neinn heklað jafn ótrúlega ljótt stykki og ég gerði þessa önn og samt fór blóð, sviti og tár í það að klára það. Ég svór þess eið að snerta ekki heklunál aftur. Nokkrum vikum seinna tók ég þá ákvörðun að skrá mig í Hússtjórnarskólann í Reykjavík. Allt sem ég lærði þar er reynsla sem ég mun alltaf búa yfir. Ég þurfti reyndar að hekla en eftir ennþá meiri blóð, svita og tár tók ég heklið í sátt og er t.d. núna að hekla teppi sem er eitthvað sem ég hefði aldrei gert mér hugarlund um að gera fyrir ári síðan! Ég hef þó prjónað meira og finnst það afskaplega gaman og mér líður eins og mér séu allir vegir færir. Ég ætla að deila eitt af nýjustu verkefnunum mínum með ykkur en það er skrautlegt barnavesti sem ég er frekar ánægð með.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Glæsilegt hjá þér!
SvaraEyðaEr eiginlega sammála með heklið - gat ekki skilið það fyrr en fyrir ekki svo löngu síðan - gerði eina tilraun til þess að hekla sjal fyrir c.a. 10 árum og það varð svo ljótt að ég get varla sagt frá því!
En núna er ég t.d. búin að hekla fullt af húfum og heila peysu á mig! :)
Líst vel á bloggið hjá þér - og öfunda þig af Hússtjórnarskólareynslunni, sé enn eftir því að hafa ekki drifið mig á sínum tíma!
Btw - ég get alveg lesið um það hvað þú gerðir yfir daginn og hversu margir komu í sund ef svona fallegar myndir fylgja með (nú eða myndir af vel heppnuðum karlkyns sundlaugargestum... hohoho)
Gangi þér vel frænka :)
Kv. J. Fanney
Þú ert helvíti myndarleg kona! ég get saumað.. en andskotinn hafi hekl og prjón, það bara get ég ekki. Langar samt alveg virkilega til að læra þetta. Kannski þú takir mig bara í sérkennslu ;)
SvaraEyðaÞað er líka svo glatað að okkar kynslóð sé svona glötuð í saumaskap og handavinnu, því ömmur okkar og mömmur kunna þetta allar upp til hópa eins og ekkert sé.
Btw. Djöfull er ég að digga að þú sért orðin bloggari!