Ég er rosalega mikill minningargrís (eins og nammigrís), ég elska minningar og ég sanka að mér allskyns dýrmætum sem að margir aðrir myndu kalla drasl. Hlutur að því að safna minningum er að geta haldið utanum hlutina svo maður drukkni ekki í pappírsbútum, myndum og öðrum hlutum. Í mínum fórum er að finna allskonar hluti, ég á part af ruslapoka, fjöður, trébút og svo ekki sé minnst á öll kortin og allar myndirnar. Þetta hljómar kannski eins og herbergið mitt sé að springa það sé svo fullt og ég hendi engu og losa mig aldrei við neitt. Nei nei það er nú ekki rétt, ég held bara eftir rosalega mikilvægum hlutum. Hlutum sem minna mig á merkileg tímamót í lífinu, yndislegar stundir og sanna vini. Ótrúlegt en satt þá er parturinn af ruslapokanum einn merkilegast hluturinn í herberginu mínu, amk að mínu mati.
Ég hef alltaf verið svolítið hrifin af korktöflum, ekki bara til að nota sem minnisspjald heldur líka til að geyma minningar á. Á tímabili átti ég tvær en ég hef losað mig við aðra þeirra. Margir kannast nú við hvað korktöflur geta verið agalega ljótar, allavegana finnst mér korktöflur engin stofustáss en ég rakst á síðu á netinu sem var með, að mínu mati, sniðuga leið til að gera korktöflu sæta og fína og jafnvel stofustáss! Ég tók mig til og keypti það sem til þurfti og mundaði skærin. Þetta varð útkoman :
| Allt sem þurfti var blúnda og korktafla. |
Annað sem hefur að geyma minningarnar mínar er minningarboxið mitt sem ég fékk að gjöf frá frænku minni og fjölskyldu hennar. Það eru orðin nokkur ár síðan ég fékk það og ég hef verið mjög dugleg við að setja stóra sem smáa hluti í það. Það eru ekki allir sem að skilja minningar manns, af hverju ein stund var merkilegri en önnur og hvernig í ósköpunum partur af ruslapoka getur verið mikilvægur hlutur. Þar af leiðandi fær enginn að gramsa í minningarboxinu mínu þótt vissulega nokkrir hafi fengið að sjá einn og einn hlut úr því!
| Minningarkassinn minn, algjör dýrgripur! |
Ég er einmitt að horfa á OTH þessa dagana og þar er Peyton með svona minningakassa, fannst voða fallegt þegar hún var að skoða hann :) Sniðug hugmynd hjá þér!
SvaraEyðaæji þú ert svo mikið æði! ég átti nokkra svona kassa þegar ég var lítil (með lás og öllu). En einhvernveginn í öllu þessu "fullorðinsstússi" þá hef ég losað mig við svo mikið af dóti, sem er alveg ótrúlega leiðinlegt... Kannski ég ætti að reyna að koma mér upp einhverjum góðum minningarkassa.
SvaraEyðaOg geeðveikt flott hugmynd með blúnduna, algjörlega eitthvað sem ég myndi gera! ;)